
BÆKUR

VARNARLAUS
2022
Önnur bókin um Soffíu lögreglukonu og Adam sálfræðing, fyrrverandi hjón sem rannsaka dularfull dauðsföll á hjúkrunarheimili. Einnig blandast Adam í rannsókn á hvarfi ungs drengs sem numinn er á brott af sálfræðistofunni.
Smelltu hér til að kaupa bókina
LAUNSÁTUR
2021
Fyrsta bókin um Soffíu rannsóknarlögreglu og fyrrverandi eiginmann hennar, sálfræðinginn Adam hjá Sáló ehf. Þegar nálar finnast í ávöxtum í búðum þarf Soffía aðstoð Adams við að leysa málið. En Covid-19 herjar á samfélagið og Adam hefur fleiri vandamál við að glíma.
Smelltu hér til að kaupa bókina
ANDLITSLAUSA KONAN
2020
Fimmta bókin um Eddu sem stödd er í brúðkaupi á Þingvöllum þegar gerð er hræðileg árás. Dótturdóttir Eddu er líka á staðnum, ásamt vinkonu sinni sem undirbýr leynda áætlun.
Smelltu hér til að kaupa bókina
BARNIÐ SEM HRÓPAÐI Í HLJÓÐI
2019
Fjórða bókin um Eddu sem nú hefur fengið leið á hinum helga steini og ráðið sig sem au-pair hjá læknisfjölskyldu í Skerjafirði þar sem einhver spenna virðist í loftinu.
Smelltu hér til að kaupa bókina
ÓVELKOMNI MAÐURINN
2018
Þriðja bókin í seríunni um hina eldhressu Eddu á Birkimelnum sem er ekkert mannlegt óviðkomandi og er sérstaklega veik fyrir hvers kyns ráðgátum.
Smelltu hér til að kaupa bókina
STÚLKAN SEM ENGINN SAKNAÐI
2017
Önnur bókin í seríunni um hina eldhressu Eddu á Birkimelnum sem er ekkert mannlegt óviðkomandi og er sérstaklega veik fyrir hvers kyns ráðgátum.
Smelltu hér til að kaupa bókina
KONAN Í BLOKKINNI
2016
Fyrsta bókin um Eddu sem er nýhætt að vinna og notar nú orku sína og tíma í að leysa vandamál annarra, stundum við litla hrifningu lögreglunnar.
Smelltu hér til að kaupa bókina
BARA EF ...
2014
Lauflétt fjölskyldusaga um hjónin Ragnar og Margréti, Eygló, dóttur þeirra, og sambýlismann hennar. Óvænt afmælisveisla, sem Magga skipulagði í tilefni 60 ára afmælis eiginmannsins fór hressilega úrskeiðis og Eygló býr yfir dramatísku leyndarmáli. Hvað nú?
Smelltu hér til að kaupa bókina
VIÐ JÓHANNA
2013
Saga ástarsambands Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur sem fór leynt í fimmtán ár, þar til þær hófu sambúð árið 2000. Seinna varð Jóhanna fyrsti opinberlega samkynhneigði þjóðarleiðtogi heims og þær Jónína fóru m.a. í opinbera heimsókn til Kína.
Smelltu hér til að kaupa bókina
LÉTTIR
2012
Hugleiðingar "harmonikkukonu" um lífið og líkamsþyngdina.
Smelltu hér til að kaupa bókina
UPP Á LÍF OG DAUÐA
2011
Skáldsaga í léttum dúr um háalvarlegt efni: Þunglyndi og sjálfsvígshættu.
Smelltu hér til að kaupa bókina
ALLT FÍNT ... EN ÞÚ?
2010
Skáldsaga um Nínu, sem er máttarstólpi fjölskyldu sinnar, og uppnámið sem faðir hennar veldur með sambandi sínu við unga konu örskömmu eftir að hann verður ekkill.
Smelltu hér til að kaupa bókina
ELSKAR MIG, ELSKAR MIG EKKI
2010
Sextán smásögur um ungt fólk og ástina eftir höfunda frá átta norrænum málsvæðum. Titilsaga bókarinnar er skrifuð af Jónínu Leósdóttur.
Smelltu hér til að kaupa bókina
ÉG & ÞÚ
2009
Síðasta bókin í þríleiknum um Önnu og Kötu, vinkonu hennar, frá Vík í Mýrdal. Báðar eru þær ástfangnar en fjarlægðir og alls kyns flækjur gera þeim erfitt fyrir.
Smelltu hér til að kaupa bókina
SVART & HVÍTT
2008
Önnur bókin um Önnu og Kötu sem upplifa alls kyns ævintýri í Brighton í Bretlandi - og leikurinn berst að lokum til Íslands.
Smelltu hér til að kaupa bókina
KOSSAR & ÓLÍFUR
2007
Fyrsta bókin um Önnu frá Vík í Mýrdal sem dvelur sumarlangt hjá frænku sinni í Bretlandi og eignast þar vinkonu sem kennir henni að meta ólífur ... og fleira.
Smelltu hér til að kaupa bókina
TALAÐ ÚT
2007
Valdir pistlar sem upphaflega birtust í tímaritinu Nýju Lífi þar sem Jónína var aðstoðarritstjóri í fimmtán ár og skrifaði m.a. vinsæla pistla.
Smelltu hér til að kaupa bókina
ÞRÍLEIKUR
1994
Skáldsaga um systurnar Ásu, Signýju og Helgu. En þær eru ekki þjóðsagnapersónur, heldur nútímakonur sem glíma við nútímavandamál.

SUNDUR OG SAMAN
1993
Skáldsaga um Birnu, sem er nýflutt til Reykjavíkur með pabba sínum eftir að foreldrar hennar skildu, og krakkana sem hún kynnist í borginni.

RÓSUMÁL
1992
Æviminningar Rósu Ingólfsdóttur listakonu sem var tíður gestur á íslenskum heimilum þau ár sem hún starfaði sem þula hjá Sjónvarpinu.
Smelltu hér til að kaupa bókina
GUÐ ALMÁTTUGUR HJÁLPI ÞÉR
1988
Endurminningar séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar sem gjarnan er kenndur við Langholtskirkju þar sem hann starfaði lengi sem vinsæll prestur og opnaði kirkjuna m.a. fyrir miðlum, alkóhólistum og popphljómsveitum.

ÞÝDDAR BÆKUR

DECEIT
2022
Bretland. Þýðandi: Quentin Bates.

UPP Á LÍF OG DAUÐA
2016
Ungverjaland. Þýðandi: Mátyás Dunajcsik.

BARA EF ...
2016
Þýskaland. Þýðandi: Tina Flecken.

VIÐ JÓHANNA
2014
Danmörk. Þýðandi: Nanna Kalkar.

ELSKAR MIG, ELSKAR MIG EKKI (smásaga)
2011
Frakkland. Þýðandi: Jean Renaud.

ALLT FÍNT ... EN ÞÚ?
2011
Þýskaland. Þýðandi: Tina Flecken.