JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR

Jónína er fædd í Reykjavík 16. maí 1954. Hún lauk stúdentsprófi úr fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík og BA-prófi í ensku og bókmenntafræðum frá Háskóla Íslands. Einnig stundaði hún nám við Essex-háskóla í Bretlandi.

Jónína hefur skrifað æviminningabækur, skáldsögur, barna- og unglingabækur og fjölda smásagna. Leikrit eftir Jónínu hafa verið sýnd í Sjónvarpinu og verk eftir hana verið flutt í Útvarpsleikhúsinu. Auk þess var leikrit hennar, Leyndarmál, flutt í þremur framhaldsskólum og stuttir leikþættir eftir Jónínu hafa verið sýndir vítt og breitt um landið.

Fyrsta frumsamda bók Jónínu var Guð almáttugur hjálpi þér, ævisaga séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar, sem út kom 1988. Árið 1993 kom út unglingabókin Sundur og saman en fyrsta skáldsaga Jónínu fyrir fullorðna, Þríleikur, fylgdi ári síðar. Árið 2013 sendi Jónína frá sér bókina Við Jóhanna, sem er ástarsaga hennar og Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra.

Í janúar 2008 hlaut Jónína Ljóðstaf Jóns úr Vör, verðlaun í ljóðasamkeppni á vegum Kópavogsbæjar. Einnig hefur hún hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir smásögur og leikverk og árið 2009 hlaut hún viðurkenningu IBBY á Íslandi fyrir skrif sín fyrir unglinga.

Jónína stofnaði Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, ásamt nokkrum öðrum rithöfundum árið 2007. Hún er nú heiðursfélagi samtakanna sem standa að veitingu verðlaunanna.

Jónína Leósdóttir starfaði sem blaðamaður og ritstjóri um tveggja áratuga skeið og þýddi jafnframt skáldsögur og bækur af öðrum toga. Frá 2006 hefur hún eingöngu unnið við bókaskrif og nýjustu skáldsögur hennar fjalla um orkumiklu eftirlaunakonuna Eddu sem leysir ýmsar ráðgátur, oft í óþökk lögreglunnar. Fyrsta bókin um Eddu, Konan í blokkinni, kom út 2016 og var tilnefnd til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Nú eru bækurnar í Eddumálum orðnar fimm.

Árið 2021 hóf ný sería göngu sína, Sáló ehf, um lögreglukonuna Soffíu og fyrrverandi eiginmann hennar, sálfræðinginn Adam. Fyrsta bókin nefnist Launsátur og önnur bókin, sem út kom 2022, ber titilinn Varnarlaus.